Ný síða komin í gagnið.

Eins og sjá má er komið nýtt útlit á heimasíðuna okkar.  Kostnaður við gömlu síðuna var einfaldlega  of mikill en þessi kostar ekki nema smá brot af þeirri gömlu.   Þetta kemur að sjálfsögðu aðeins niður á gæðum en dugar samt til að koma því efni á framfæri sem við þurfum.  Það er ekki búið að fullklára síðuna og kannski finna menn einhverja bögga sumstaðar.  Þá er um að gera að láta vita af því til að hægt sé  að bregðast við.  Í myndaalbúmi er best að fara í Sets til að sjá allar möppur.

Félagar er svo endilega beðnir að senda inn efni og myndir til að halda úti líflegri síðu.

Mótorhjóladekk – hóppöntun

Ef menn hafa áhuga á hóppöntun á dekkum er Jónas Lilliendal að bjóðast til að útvega þau eins og hér kemur á eftir.

Get útvegað mótorhjóladekk fyrir flestar gerðir af mótorhjólum á mjög góðu verði. Því stærri sem pöntunin er því betra verð. Einungis þekktar tegundir eins og AVON, DUNLOP og fleiri. Gott tækifæri fyrir klúbbfélaga að sameinast um pöntun og njóta góðs verðs.

Sem dæmi þá kosta White Wall dekk undir Yamaha Royal Star Venture  Stærðir: 150/80 R16 – 150/90 R15 innan við 65.þús. kr,- settið (miðað við síðasta verð – pöntuð voru þrjú sett).

Upplýsingar: jonaslill@istak.is